Bloggsvæði 6.flokks Keflavíkur

Velkomin(n) á bloggsvæði 6.flokks Keflavíkur

12.11.2007 13:08:09 / unnarsig

ný heimasíða

sæl veriði,

frá og með deginum í dag verður ný heimasíða, sem er bæði fyrir 5. flokk og 6. flokk.

slóðin er:   http://blog.central.is/keflavik_fc/

kv. Unnar


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.10.2007 21:40:17 / unnarsig

Tilkynning til foreldra

Tilkynning til foreldra! 

Ástand Reykjaneshallarinnar hefur ekki farið fram hjá neinum.  Svifryksmengun hefur verið yfir leyfilegum mörkum, af þeim sökum var höllinni lokað til að reyna ráða bót á ástandinu. 

Mengunin minnkaði en er ennþá til staðar og hefur Reykjaneshöllin verið opnuð til æfingahalds á undanþágu frá heilbrigðiseftirliti til 1. desember. 

Við hjá Barna og unglingaráði teljum okkur skilt að upplýsa foreldra iðkenda um þetta ástand. Fullur skilningur verður sýndur því barni sem getur ekki stundað æfingar við þessar aðstæður. Það kemur ekki til með að hafa áhrif mætingasókn ársins. Til að minnka svifrykið hefur verið brugðið á það ráð að vökva grasið í höllinni, því ráðleggjum við foreldrum þeirra barna sem æfa þarna núna að senda þau í síðbuxum og í síðerma bolum á æfingu til að minnka líkurnar á sýkingu ef fallið er í grasið. 

Tekin hefur verið ákvörðun hjá Reykjanesbæ að kaupa nýtt gras og stefnt er á að nota desembermánuð til að skipta um það í höllinni, jafnvel fyrr ef vel gengur og verða þá engar æfingar þar.  Hvar við æfum á þeim tíma er ekki vitað á þessari stundu en það verður tilkynnt þegar nær dregur. Augljóslega verða engin mót fyrir áramót og verðum við að skoða hvað hægt er að gera í þeim málum eftir áramótin. 

Okkur þykir miður hvernig þetta tímabil hefst hjá Keflavík en það getur bara batnað héðan í frá og við lítum björtum augum á framtíðina.                                                  

Barna og unglingaráð Knattspyrnudeildar Keflavíkur


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.10.2007 14:21:53 / unnarsig

Opið hús

Opið hús verður haldið á fimmtudaginn 25. október í Fjörheimum. Húsið opnar kl. 17:00 og lokar 18:30. Hlakka til að sjá ykkur.

kv. Unnar

p.s. mig vantar 2 stk foreldra til þess að hjálpa mér:D


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.10.2007 12:09:05 / unnarsig

Lokahóf

hér eru nokkrar myndir sem ég tók á lokahófinu.

kv. Unnar


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.10.2007 12:35:16 / unnarsig

Opna Húsið Frestast

Við verðum því miður að fresta opna húsinu sem að átti að vera hjá okkur í kvöld, þar sem að búið var að tvíbóka Fjörheima.

» 0 hafa sagt sína skoðun

16.10.2007 23:15:32 / unnarsig

foreldrafundur

Foreldrafundur fyrir knattspyrnuárið 2007-2008 verður haldinn í K-húsinu miðvikudaginn 17. október kl. 19:00.

Hlakka til að sjá ykkur.

kv. Unnar


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.10.2007 12:15:48 / unnarsig

Reykjaneshöllin opin

Æfingar fara fram í Reykjaneshöllinni í dag, mánudaginn 15. október. Æfingataflan tekur því gildi í dag. Yngra árið æfir frá 14:30-15:20 en eldra árið frá 15:20-16:10.

Kv. Unnar


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.10.2007 18:33:55 / unnarsig

Sumarið gert upp.

Árið 2006-2007 hjá 6. flokk karla,  Knattspyrnuárið 2006 og 2007 er búið að vera virkilega viðburðaríkt. Um miðjan september í fyrra vorum um 45 knattspyrnumenn sem mættu mér í andirinu á Reykjaneshöllinni. Mest fór æfingasókn upp í 55 einstaklinga en að meðaltali voru þeir rétt rúmlega 40, sem er virkilega ásættanlegt.              Mótalistinn er nokkuð langur í ár. Við héldum tvö mót í Reykjaneshöllinni, Icelandexpressmótið fyrir áramót og Svalamótið eftir áramót. Að auki hélt Njarðvík mót í höllinni í nóvember, sem við tókum þátt í.  Faxaflóamótið var svo fyrsta mótið þar sem leikið var úti, nánartiltekið á Stjörnuvelli í maí. Persónuleg hef ég aldrei mætt annarri eins rigningu á fótboltavelli og held ég að drengirnir vilji gleyma þessu móti sem fyrst. Það nægir að minnast á beljur á svelli og þá getiðið ímyndað ykkur ástandið á drengjunumJ   Í byrjun júní var okkur svo boðið á Bónusmót Þróttar, sem haldið var í Laugardalnum. Mikill fjöldi var á þessu móti en mótið heppnaðist vel í alla staði. Sama má segja um Landsbankamót Aftureldingar sem við fórum kringum 20. júní. Smá upphitun fyrir eldra árið, fæddir 1997, sem voru á leiðinni til Eyja. Til Vestmannaeyja fór svo eldra árið í lok júní. Flottur hópur, tæplega 30 knattspyrnumenn ásamt stórum hóp foreldra. 3 lið voru skráð til keppni, A-, B- og C-lið. Virkilega flott mót hjá ÍBV og líklega það flottast á landinu. Til þess að gera mjög langa sögu mjög stutta, þá voru allir til, drengir og stúlkur sínu félagi til fyrirmyndar. Allir stóðu sig þvílíkt vel innan vallar sem utan, en ég vill óska A-liðinu til hamingju með árangurinn sinn, þar sem þeir lentu í 5. sæti. Að auki fékk Eiður Snær Unnarsson verðlaun fyrir knattrak. Um miðjan júlí var svo farið í Pollamót KSÍ. Undankeppnin var haldin á Leikninsvellinum fyrir yngra árið en á Iðavöllum fyrir eldra árið. Eldra árið var í mjög erfiðum riðli. Liðin sem voru saman í riðli að þessu sinni enduðu í 1. 3. og 5. sæti á Shellmótinu í Eyjum. Að auki voru Leiknismenn einnig í riðlinum. Til að gera langa sögu stutta þá komumst við því miður ekki upp úr riðlinum þrátt fyrir mikla baráttu. Yngra árið stóð sig mjög vel, komust upp úr riðlinum og fóru í úrslitakeppnina sem haldin var á Skaganum. Þar urðu margir spennandi leikir en drengirnir enduðu að lokum í 4. sæti. Glæsilegur árangur og vil ég óska drengjunum innilega til hamingju með árangurinn.Síðasta mót sumarsins var svo Króksmótið sem haldið er á Sauðárkróki. Þangað fórum við með yngra árið, rúmlega 20 drengi og 3 lið. Það sama má segja um Króksmótið og Shellmótið í Eyjum, virkilega flott mót og til fyrirmyndar í alla staði.             Fótbolti var nú ekki það eina sem við gerðum okkur til skemmtunnar. Við vorum með opið hús í Fjörheimum oftar en einu sinni, við fórum í keilu og svo má ekki gleyma hinu víðfræga jólagleði Gunna Jóns, þar sem skemmta allir skemmtu sér konunglega. En einnig fórum við í ýmsar keppnir sem var keppt í á æfingatíma. Sitja upp við vegg, armbogakeppnin og páskaeggja keppnin. Þar að auki valdi ég leikmann mánaðarins, bæði hjá yngra og eldra árinu, við löbbuðum inn á völlinn á öllum heimaleikjum Keflavíkur og að auki fengum við nokkrarar skemmtilegar heimsóknir frá Reyni/Víði og Eyjapeyjum. Annars vill ég þakka öllum foreldrum sem aðstoðuðu mig á árinu sem og unglingaráði, fyrir alla hjálpina og það starf sem þau gera.                                                                                     Unnar

» 1 hafa sagt sína skoðun

11.10.2007 10:29:57 / unnarsig

Æfing í dag, fimmtudag (breyting)

þar sem höllin er enn lokuð þá æfum við í dag á sparkvellinum við Heiðarskóla. Æfingin byrjar kl. 14:50 og lýkur 15:50.

Munið að klæða ykkur eftir veðri.

kv. Unnar


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.10.2007 08:07:36 / unnarsig

æfing í dag

jæja, þá hefjum við æfingar aftur. Í dag verður æfing samkvæmt tímatöflu og fer hún fram í Heiðarskóla.

kv. Unnar


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.10.2007 13:49:27 / unnarsig

Reykjaneshöll lokuð en og aftur

Reykjaneshöllin er lokuð, aftur. Hvað er til ráða? Væri nú sniðugt að beyta bæjarráðsmanna smá pressu, það líður nú senn að kosningu:lol:

Annars, er frí á æfingu í dag. Ég sé ykkur á miðvikudaginn. Ég kem með skilaboð hér á blogginu hvað við munum gera á miðvikudaginn.

kv. Unnar


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.10.2007 12:16:45 / unnarsig

Reykjaneshöll lokuð

Reykjaneshöllin verður einnig lokuð í dag, fimmtudag, vegna hreinsunar sem fer þar nú fram. Persónulega, finnst mér þetta hrikalega leiðinlegt en vonandi verður búið að opna höllina í næstu viku;)

kv. Unnar


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.10.2007 12:08:57 / unnarsig

Lokahóf yngri flokka

Lokahóf yngri flokka Knattspyrnudeildar verður haldið laugardaginn 6. október næstkomandi í Íþróttahúsinu við Sunnubraut frá kl. 11:00 til 13:00.  Iðkendur og foreldrar eru hvattir til að fjölmenna.

Kv. Unnar


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.10.2007 11:12:58 / unnarsig

Reykjaneshöllin lokuð

Reykjaneshöllin verður einnig lokuð í dag, miðvikudag. Það er verið að þrífa höllina þannig að það verði betra loft í henni.

En ég vonast til að það verði búið að opna höllina á morgun, en það verður að koma í ljós!

kv. Unnar


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.10.2007 12:50:16 / unnarsig

Reykjaneshöllin lokuð

Reykjaneshöllin er lokið í dag og á morgun (mánudag og þriðjudag) vegna hreinsunar. Falla því allar æfingar niður þessa daga. Sé ykkur á miðvikudaginn.

 kv. Unnar


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 12
Dagsetning
23. febrúar 2012
Klukkan